Fotbolti.net
25.04.21 - 10:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ægir Jarl framlengir við KR (Staðfest)

Ægir Jarl framlengir við KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir Jarl Jónasson leikmaður KR hefur framlengt samning sinn við KR.

Gamli samningurinn átti að renna út eftir komandi tímabil og hefðu önnur félög mátt ræða við Ægi. Hann kaus að vera áfram í Vesturbænum.
Ægir kom til KR frá Fjölni eftir tímabilið 2018 og hefur leiki 40 leiki í KR búningnum í deild og bikar og skorað í þeim 10 mörk.

Ægir lék á sínum tíma fimmtán unglingalandsleiki og skoraði eitt mark. Síðustu leikirnir voru árið 2018.

Í fyrra skoraði hann tvö mörk í fimmtán deildarleikjum þegar KR endaði í fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar. Í ár er KR spáð 4. sæti.


Við undirskrift

Heimild: kr.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.