Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. apríl 2021 07:30
Aksentije Milisic
„Bruno hefur talað um Raphinha síðan hann kom til United"
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Fred, leikmaður Manchester United, hefur sagt frá því að Bruno Fernandes hefur talað mikið um og hrósað leikmanni Leeds United, Raphinha.

Bruno og Raphinha léku saman hjá Sporting Lissabon en Raphinha hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu síðan með Leeds á þessu tímabili.

Man Utd og Leeds mætast í dag og viðurkenndi Fred að það væri gott fyrir Man Utd ef að Raphinha missir af leiknum. Hann hefur verið meiddur upp á síðkastið.

„Bruno hefur talað um Raphinha síðan hann kom til okkar. Þeir spiluðu saman hjá Sporting," sagði Fred við heimasíðu Manchester United.

„Hann er frábær leikmaður og hefur átt gott tímabil. Það eru sjálfsagt mörg lið að fylgjast með honum."

„Ég vil óska honum góðs bata og velgengni í framtíðinni. Það væri vissulega gott fyrir okkur ef hann verður ekki klár í leikinn."

Leeds United er um miðja deild sem nýliðar á meðan Manchester United situr í öðru sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner