Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 25. apríl 2022 16:16
Elvar Geir Magnússon
Pogba búinn að yfirgefa WhatsApp spjallhóp Man Utd
Pogba has left the conversation.
Pogba has left the conversation.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United og hefur einnig sagt sitt síðasta í leikmannaspjallhóp liðsins á WhatsApp.

Leikmenn nota spjallforritið til að koma skilaboðum sín á milli en Pogba, sem hefur sagt liðsfélögum sínum að hann sé á förum í sumar, er búinn að yfirgefa hópinn.

Pogba er meiddur og spilar ekki meira á tímabilinu. Að tímabilinu loknu þá rennur samningur hans út og hann mun ekki skrifa undir framlengingu.

Pogba er sagður hafa tilboð frá Real Madrid og Paris Saint-Germain og hefur einnig verið orðaður við endurkomu til Juventus.

Pogba hefur ekki staðið undir væntingum síðan United fékk hann aftur til félagsins og fyrr í þessum mánuði bauluðu stuðningsmenn liðsins á hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner