Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Guðni - Það væri frábært ef þetta væri svona í öllum leikjum
Jóhann Kristinn: Eina sem við getum gert er að skammast okkar í kvöld
Matti er stoltur að hafa haldið hreinu tvo leiki í röð
Einar hefur áhyggjur af stöðunni: Stelpurnar hafa lent í þessu áður
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
   mán 25. maí 2026 22:09
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Einar hefur áhyggjur af stöðunni: Stelpurnar hafa lent í þessu áður
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður mjög illa. Það var óþarfi að tapa þessum leik, en svona er þetta" sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkinga eftir 1-0 tap á heimavelli gegn Val.


Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 -  1 Valur

Ertu óánægður út í frammistöðuna í dag?

„Við hefðum geta gert betur, að mörgu leyti. En við hefðum líka átt að skora mörk. Gleymum okkur í augnablik og þá refsa þær okkur. Þetta er eitt af þessum leikjum."

Einar segir að það hafi verið erfitt að brjóta niður vörnina hjá Val.

„Við sköpuðum ekki nóg af færum í dag, það vantaði eitthvað upp á. En á móti kemur þá vörðu Valsararnir boxið vel og voru með þéttar blokkir. Það var erfitt að brjóta þær niður. En þegar við fáum tækifæri hefðum við átt að gera betur."

Sex umferðir eru búnar af Bestu Deildinni, Víkingar hafa unnið tvo leiki og tapað fjórum. Einar var spurður hvort að hann hafi áhyggjur af stöðunni.

„Að sjálfsögðu, þetta er alls ekki nógu gott. En við þurfum að taka okkur saman og laga þetta. Stelpurnar hafa lent í þessu áður og þær náðu að rífa sig upp þá og við þurfum að gera það aftur."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner