Fotbolti.net
25.05.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Van Dijk sló met John Terry

Van Dijk sló met John Terry
Canon

Mynd: Liverpool

Hollenski varnarjaxlinn Virgil van Dijk lék allar mínúturnar á úrvalsdeildartímabilinu sem lauk í gær.
Liverpool endaði í Meistaradeildarsæti á miklu vonbrigðatímabili eftir að hafa unnið Englandsmeistaratitilinn í fyrra og styrkt leikmannahópinn með rándýrum leikmönnum yfir sumarið.

Van Dijk segir að þetta hafi verið erfiðasta tímabilið sitt hjá Liverpool frá því að hann gekk til liðs við félagið fyrir átta og hálfu ári síðan.

Van Dijk bætti þó úrvalsdeildarmet með því að spila allar mínúturnar á tímabilinu. Hann bætti ellefu ára gamalt met sem John Terry setti þegar hann spilaði allar mínúturnar með Chelsea tímabilið 2014/15.

Van Dijk er þar með orðinn elsti útispilandi leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar til að spila allar mínúturnar á deildartímabili.

Hollendingurinn er 34 ára og 320 daga gamall, en Terry var 34 ára og 168 daga gamall þegar tímabilinu lauk fyrir ellefu árum.

Van Dijk er fyrirliði Liverpool og með eitt ár eftir af samning.

Duracell: Van Dijk eini útileikmaðurinn sem hefur spilað allar mínútur
TENGT EFNI

Duracell: Van Dijk eini útileikmaðurinn sem hefur spilað allar mínútur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.