Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júní 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Bróðir Pogba til Indlands (Staðfest)
Florentin og Paul Pogba mættust í Evrópudeildinni fyrir nokkrum árum
Florentin og Paul Pogba mættust í Evrópudeildinni fyrir nokkrum árum
Mynd: Getty Images
Florentin Pogba, bróðir Paul Pogba, hefur samið við indverska félagið ATK Mohun Bagan.

Pogba er 31 árs gamall varnarmaður en hann hefur verið á mála hjá franska félaginu Sochaux frá 2020.

Hann hefur spilað með félögum á borð við Saint Etienne, Genclerbirligi, Atlanta United og Sedan en heldur nú í indversku ofurdeildina.

Pogba, sem er fæddur í Frakklandi, er landsliðsmaður Gíneu og á að baki 31 landsleik fyrir þjóðina.

Hann er eldri bróðir Paul Pogba, sem gengur til liðs við Juventus á frjálsri sölu frá Manchester United á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner