Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. júní 2022 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Lucas Alario til Frankfurt (Staðfest)
Lucas Alario skrifaði undir samning til 2025
Lucas Alario skrifaði undir samning til 2025
Mynd: Eintracht Frankfurt
Evrópudeildarmeistarar Eintracht Frankfurt hafa gengið frá kaupum á argentínska framherjanum Lucas Alario en hann kemur frá Bayer Leverkusen.

Alario er 29 ára gamall og hefur verið á mála hjá Leverkusen frá 2017.

Hann hefur komið að 74 mörkum í 164 leikjum með liðinu í öllum keppnum en hefur nú ákveðið að taka annarri áskorun.

Alario gekk í gær í raðir Eintracht Frankfurt og er kaupverðið 8 milljónir evra. Hann gerði þriggja ára samning við félagið.

Framherjinn skoraði 6 mörk fyrir Leverkusen í þýsku deildinni á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner