Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 25. júlí 2021 07:30
Victor Pálsson
Wilson og Gazzaniga í Fulham (Staðfest)
Mynd: EPA
Fulham hefur staðfest komu miðjumannsins Harry Wilson en hann kemur til félagsins frá Liverpool.

Þessi öflugi leikmaður kostar Fulham 12 milljónir punda en félagið staðfesti komu hans í gær.

Wilson spilaði með Cardiff í láni á síðustu leiktíð og skoraði þá sjö mörk í 37 leikjum. Fyrir það lék hann með Derby og Bournemouth.

Hann er ekki sá eini sem Fulham fékk en markvörðurinn Paulo Gazzaniga er einnig genginn í raðir félagsins.

Gazzaniga kemur á frjálsri sölu en hann hefur undanfarin fjögur ár spilað með Tottenham.


Athugasemdir
banner
banner