Spilar við Manchester City í dag
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff mæta Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Aron var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær.
Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Í viðtalinu ræddi Aron um meiðslin sem hann hefur verið að glíma við, fyrsta leikinn í ensku úrvalsdeildinni og fleira.
Aron hefur verið að glíma við meiðsli í öxl og hefur ekki getað tekið sín frægu löngu innköst. Hann var spurður að því hvernig staðan væri varðandi innköstin.
„Ég hef ekkert reynt þau og veit ekki hvernig þau standa núna. Ég fór náttúrulega í sprautu sem strekkir á liðböndum svo ég næ ekki þessum krafti sem ég hef verið með. Ég er að vinna markvisst að því núna að ná hreyfanleika aftur í öxlina. Kannski fer maður að taka innköst áður en maður veit af. Eins og er get ég ekki grýtt honum inn," segir Aron.
Aron spilaði mjög lítið á undirbúningstímabilinu en fékk byrjunarliðssæti í fyrsta leik þegar Cardiff tapaði fyrir West Ham um síðustu helgi.
„Maður finnur fyrir því þegar þjálfarinn hefur trú á manni. Ég spilaði mjög vel í lok síðasta tímabils. Ég spilaði ekkert í æfingaleikjunum á undirbúningstímabilinu nema þeim síðasta og kom vel út úr honum. Mér var hent í byrjunarliðið í fyrsta leik og gerði þokkalega miðað við að hafa ekki spilað mikið."
Manchester City slátraði Newcastle 4-0 í fyrstu umferðinni og er því ansi erfitt verkefni fyrir Cardiff í dag.
„Þeir áttu stórleik gegn Newcastle. Við vitum alveg hvað við erum að fara að keppa við. Þetta eru sterkir leikmenn í öllum stöðum og landsliðsmenn á bekknum sem eru að reyna að koma sér í liðið. Þetta verður erfiður leikur en við erum ekki að fara að gefa þeim neitt. Maður er í þessu til að spila meðal þeirra bestu," segir Aron Einar.
Leikur Cardiff og Manchester City verður klukkan 15:00 í dag en viðtalið við Aron er í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

