Fotbolti.net
25.08.16 - 22:40
Jóhann Ingi Hafþórsson

Úlfur Arnar: Barnalegt - Verðum að fara að þroskast

Auglýsing
Úlfur Arnar Jökulsson.

Úlfur Arnar Jökulsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

<i>„Ég er drullusvekktur, þetta er fótboltaleikur sem við áttum alltaf að vinna,\"</i> voru fyrstu viðbrögð Úlfs Arnars Jökulssonar, þjálfara Aftureldingar eftir 2-2 jafntefli við Gróttu í kvöld.

Afturelding var komið í 2-0 í seinni hálfleik en Gróttu tókst að skora tvö mörk í seinni hállfeik og jafna leikinn.
„Leikurinn átti að vera búinn í hálfleik. Við náðum bara að skora eitt mark en við vorum með öll völd á vellinum.\"

Úlfur var ansi ósáttur með sitt lið á lokakaflanum og segir það verða að þroskast.

„Það er barnalegt að fá á sig skyndisókn út frá markspyrnu. Við verðum að fara að þroskast,\" sagði Úlfur.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.