Fotbolti.net
25.08.18 - 20:35
Elvar Geir Magnússon

Halli Björns: Hamborgarabræla í upphitun

Auglýsing
Halli Björns.

Halli Björns.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Björnsson átti mikilvægar vörslur í seinni hálfleiknum þegar Stjarnan vann toppslaginn gegn Breiðabliki í kvöld.

„Það var ekkert smá þegar dómarinn flautaði loks af. Við klúðruðum mikilvægum stigum gegn Grindavík og ætluðum ekki að láta það endurtaka sig. Það var djöfulli sæt tilfinning þegar flautan gall,\" sagði Haraldur eftir leikinn.
Stjarnan var án vafa betra liðið í fyrri hálfleik og náði að loka ágætlega á spil Breiðabliks.

„Breiðablik er gott fótboltalið og ef þeir fá tíma til að spila þá eru þeir góðir í því. Strákarnir voru grimmir í dag og náðu að halda Blikunum í skefjum.\"

Stjarnan er í baráttu um að taka tvöfalt í ár og mætir Valsmönnum í svakalegum leik á miðvikudag. Það má búast við góðri stemningu á þeim leik, líkt og á leiknum í kvöld.

„Silfurskeiðin lét heyra vel í sér í kvöld og margir Garðbæingar voru mættir snemma. Vindáttin var reyndar ekki skemmtileg og maður fékk hamborgarabræluna yfir sig í upphitun. Það þarf að færa grillið,\" sagði Haraldur hress.

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.