Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. ágúst 2019 12:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið B'mouth og Man. City: Silva með bandið í 400. leiknum - Jesus ekki í hóp
Bernardo, Sterling og De Bruyne byrja allir hjá meisturunum.
Bernardo, Sterling og De Bruyne byrja allir hjá meisturunum.
Mynd: Getty Images
Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni hefst eftir tæpan klukkutíma eða klukkan 13:00.

Bournemouth og Manchester City mætast þá á Vitality leikvanginum í Bournemouth. Bæði lið eru með fjögur stig fyrir leikinn í dag.

Eddie Howe, stjóri Bournemouth, gerir eina breytingu á sínu liði frá 1-2 útsigrinum gegn Aston Villa. Chris Mepham kemur inn í stað Harry Wilson.

Lið Manchester City yfirspilaði Tottenham lengstan hluta leiksins í síðustu umferð en uppskar einungis eitt stig eftir 2-2 jafntefli. Pep Guardiola, gerir eina breytingu á sínu liði. David Silva tekur stöðu Rodri á miðjunni. Silva leikur í dag sinn 400. leik fyrir Manchester City. Þá vekur athygli að Gabriel Jesus er ekki í leikmannahópi City liðsins.

Byrjunarlið Bournemouth: Ramsdale, Smith, Mepham, Cook(c), Daniels, Lerma, King, Ake, Billing, Frase, C. Wilson.

Varamenn: Boruc, Simpson, Rico, Surman, H. Wilson, Ibe, Solanke


Byrjunarlið Manchester City: Ederson, Walker, Otamendi, Laporte, Zinchenko, Silva(c), Gundogan, De Bruyne, Bernardo, Aguero, Sterling

Varamenn: Bravo. Angelino, Rodrigo, Fernandinho, Mahrez, Cancelo, Foden.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner