Fiorentina hefur krækt í Lucas Torreira á láni frá Arsenal út leiktíðina. Í lánssamningnum er kaupákvæði sem Fiorentina getur nýtt sér.
Torreira er 25 miðjumaður frá Úrúgvæ og var á síðasta tímabili hjá Atletico Madrid á láni. Hann lék nítján leiki fyrir liðið sem var Spánarmeistari.
Hann á að baki 31 landsleiki og spilaði með Úrúgvæ á Copa America. Hann verður númer átján hjá Fiorentina.
Torreira var keyptur til Arsenal sumarið 2018 frá Sampdoria. Hann hefur alls leikið 89 leiki með Arsenal og skorað fjögur mörk.

Il nostro nuovo numero 1⃣8⃣#ForzaViola 💜 #Fiorentina pic.twitter.com/VgiFQeCQx8
— ACF Fiorentina (@acffiorentina) August 25, 2021
Athugasemdir