25.09.16 - 16:25
Gunnar Birgisson
Rúnar Páll: Væri eitthvað að ef maður væri ekki sáttur við það
Auglýsing


Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski


Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Við töluðum um það að við þyrftum að fá sigra út úr þessum síðustu 4 leikjum okkar, við erum búnir með þrjá,\" sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar í viðtali við Fótbolta.net eftir leik liðsins við Fjölni í Grafarvogi sem Stjarnan vann 0-1.
„Mér fannst við koma sterkari inn í seinni hálfleik og ná að snúa þessu við, eftir að við skorum þetta mark var bara eitt í stöðunni og það var að þétta leikinn og hindra það að fá mark á okkur.\"
„Það væri eitthvað að manni ef maður væri ekki sáttur við það,\" sagði Rúnar Páll aðspurður út í það hvernig honum litist á þá niðurstöðu ef lið hans myndi enda í öðru sæti deildarinnar.
„Það væri eitthvað að manni ef maður væri ekki sáttur við það,\" sagði Rúnar Páll aðspurður út í það hvernig honum litist á þá niðurstöðu ef lið hans myndi enda í öðru sæti deildarinnar.



