Fotbolti.net
25.09.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Arnar: Ætlum að þrýsta Eistana niður

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli á morgun í fyrsta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og var spurður út í undirbúninginn og stöðuna á hópnum.
Búist við sannfærandi sigri Íslands - „Klárlega sterkasta lið riðilsins“
TENGT EFNI

Búist við sannfærandi sigri Íslands - „Klárlega sterkasta lið riðilsins“

„Undirbúningur hefur gengið mjög vel. Það hafa verið frábærar æfingar og flottir fundir. Það er góður andi í hópnum, orkumiklir strákar og vikan bara verið virkilega skemmtileg," segir Arnar.

Gæti vel verið að við köllum inn nýjan leikmann
Bjarki Steinn Bjarkason sem átti að vera í hópnum braut bein í fæti um helgina en athygli vakti að enginn leikmaður var kallaður inn í hans stað.

„Við ákváðum að taka ekki inn mann að svo stöddu. Þetta er ástæðan fyrir því að við erum með stóran hóp strax í byrjun. Það gæti vel verið að við köllum inn mann seinna meir."

Þá fáum við stuðningsmenn með okkur
Ísland er í 74. sæti á styrkleikalista FIFA en Eistland í 127. sæti og veðbankar búast við mjög sannfærandi sigri Íslands. Hvernig leikmynd munum við sjá á morgun?

„Við erum mikið ofar á FIFA listanum og okkur ber skylda til að taka leikinn til þeirra, halda háu orkustigi. Aserbaísjan er einu sæti neðar en Eistland svo fólk getur kannski haft smá hugmyndir um það hvernig leikurinn mun þróast," segir Arnar.

„Við munum klárlega vera meira með boltann en við þurfum að vera með góða ákefð í okkar leik og þurfum að hafa ákveðna blöndu; vera beinskeyttir á köflum og svo hvíla okkur með boltann þegar það á við. Fyrst og fremst mikið af krossum og læti inni í teig. Reyna að þrýsta þá niður, ef við byrjum sterkt á háu tempói og látum finna vel fyrir okkur þá fáum við stuðningsmenn með okkur."

Erfitt að fullyrða hvort allir séu tilbúnir að spila fjóra leiki á svona skömmum tíma
Elías Rafn Ólafsson aðalmarkvörður Íslands verður á meiðslalistanum næstu mánuði. Hákon Rafn Valdimarsson, sem mun líklega taka stöðuna milli stanganna, var að glíma við bakmeiðsli í aðdraganda gluggans en sagði við fjölmiðla í vikunni að hann væri orðinn klár í slaginn. Arnar var spurður hvort Hákon væri tilbúinn að spila alla leikina fjóra?

„Að svo stöddu. Hann hefur æft vel í vikunni. Það er erfitt að fullyrða hvort allir í hópnum séu tilbúnir að spila fjóra leiki á svona skömmum tíma, með öllum ferðalögunum sem þeim fylgja. Þetta er hópíþrótt og við þurfum á öllum leikmönnum að halda. Það er leiðinlegt að missa Elías út en við erum mjög vel settir hvað markvarðarstöðuna varðar," segir Arnar en Rúnar Alex Rúnarsson og Anton Ari Einarsson eru hinir markverðirnir í hópnum.
Bjarki Steinn þurfti að draga sig út úr hópnum.

Bjarki Steinn þurfti að draga sig út úr hópnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar: Ætlum að þrýsta Eistana niður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson.

Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.