Fotbolti.net
25.09.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Bellamy vonast til að mæta Ronaldo aftur

Bellamy vonast til að mæta Ronaldo aftur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Craig Bellamy landsliðsþjálfari Wales svaraði spurningum eftir 1-0 tap gegn Portúgal í fyrstu umferð Þjóðadeildarinnar í gærkvöldi.
Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp

Portúgalir voru sterkari aðilinn en Walesverjar vörðust vel, beittu góðum skyndisóknum og sköpuðu tvisvar mikla hættu á lokamínútunum. Úrvalsdeildarleikmennirnir Brennan Johnson og Lewis Koumas komust nálægt því að gera jöfnunarmark, en tókst ekki.

„Þetta var erfiður leikur fyrir okkur þar sem við þurftum að kveljast mikið. Ég held að við höfum aldrei áður spilað svona mikið án boltans," sagði Bellamy eftir tapið í gær. „Við hefðum getað gert meira við boltann þegar við fengum hann en ég er samt meira en stoltur af þessari frammistöðu.

„Það eru margir lykilmenn fjarverandi vegna meiðsla en strákarnir sönnuðu í dag að þeir geta höndlað fjarverurnar. Maður kemur í manns stað. Í dag spiluðum við með nokkra leikmenn sem eru ekki að fá mesta spiltímann með sínum félagsliðum en þeir lögðu hjartað í þetta og sýndu frábæra frammistöðu."


Harry Wilson, Karl Darlow, Dylan Lawlor, Joe Rodon og Nathan Broadhead voru ekki með Wales vegna meiðsla.

Wales er í erfiðum riðli sem inniheldur einnig Noreg og Danmörku. Norðmenn unnu 3-2 gegn Dönum í fjörugum leik í gærkvöldi og skoraði Erling Haaland tvennu.

Bellamy hrósaði Cristiano Ronaldo, sem var í byrjunarliði Portúgal, í hástert og segist hlakka til að mæta honum aftur í seinni leiknum sem verður leikinn í Wales.

„Við eigum mikið inni og munum reyna að bæta okkur fyrir næsta leik. Í kvöld mættum við liði sem er um það bil 1,4 milljarða punda virði. Ronaldo er einn af allra bestu fótboltamönnum sögunnar, ekki bara sinnar kynslóðar heldur allrar sögunnar. Hann er ótrúlega hættulegur þrátt fyrir að vera að eldast. Hann er ofurstjarna og ég fæ vonandi að mæta honum aftur, það er aldrei að vita hversu lengi hann ætlar að halda áfram að spila. Tíminn heldur áfram að tifa fyrir hann eins og alla aðra."

Wales tekur á móti Portúgal 17. nóvember. Landsliðið spilar tvo leiki við Noreg og tvo við Dani á undan.
Bellamy vonast til að mæta Ronaldo aftur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bellamy vonast til að mæta Ronaldo aftur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.