25.09.26 - 18:36
Ívan Guðjón Baldursson
Geta ekki áfrýjað til Alþjóðlega íþróttadómstólsins

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Í dag var tilkynnt að Manchester City var fundið sekt í 114 ákæruliðum af 115 vegna brota sinna á reglum ensku úrvalsdeildarinnar.

TENGT EFNI
Önnur félög munu búast við stigafrádrætti eða þyngri refsingu
Búist er við þungri refsingu gegn félaginu sem mun þó að öllum líkindum áfrýja málinu.
Lord Pannick KC fer fyrir lögmannateymi Man City í málinu eftir að hann hjálpaði félaginu að komast undan keppnisbanni evrópska fótboltasambandsins, UEFA, fyrir sex árum síðan.
UEFA gerði City að greiða 30 milljón punda sekt og dæmdi félagið í tveggja ára keppnisbann frá keppnum á vegum sambandsins, en stórveldið áfrýjaði málinu til Alþjóðlega íþróttadómstólsins CAS sem breytti ákvörðun UEFA.
CAS lækkaði sektina niður í 10 milljónir punda og aflétti tveggja ára keppnisbanni City eftir að teymi Lord Pannick benti á reglugerðir UEFA varðandi tímaramma á kærumálum.
Enskir fjölmiðlar benda þó á að í þetta skiptið getur City ekki áfrýjað málinu til CAS í ljósi þess að enska úrvalsdeildin heyrir ekki undir CAS. City getur einungis áfrýjað málinu innan Englands.
Það er þó með öllu óljóst hversu langan tíma áfrýjunarferlið og annað í kringum þetta mál getur tekið.

Úrvalsdeildarfélög gætu höfðað skaðabótamál á hendur City

Mynd: EPA

Mynd: EPA