Fotbolti.net
25.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Franski boltinn

Evrópa í dag - Stórstjörnur mætast í El Clásico

Evrópa í dag - Stórstjörnur mætast í El Clásico
Canon

Mynd: EPA

Evrópski boltinn er í fullu fjöri þessa dagana og eru spennandi leikir á dagskrá í þremur af sterkustu deildum álfunnar í dag, þar á meðal einn allra stærsti leikur tímabilsins - El Clásico.
Spánarmeistarar Barcelona taka á móti lærlingum José Mourinho í Real Madrid í stórleiknum eftirvænta og geta Börsungar komið sér níu stigum frá Real með sigri. Það eru sex stig sem skilja liðin að sem stendur, þar sem Barcelona er með fullt hús stiga eftir níu fyrstu umferðirnar.

Orri Steinn Óskarsson og félagar í liði Real Sociedad eiga þá heimaleik við Levante í dag. Liðið er á miklu skriði og situr í 5. sæti sem stendur, með 16 stig eftir 9 umferðir.

Athletic Bilbao og Celta Vigo eiga einnig heimaleiki á Spáni og svo eru leikir á dagskrá í Þýskalandi og Frakklandi.

Bayer Leverkusen þarf sigur í toppbaráttuni í Þýskalandi áður en ríkjandi meistarar FC Bayern heimsækja Freiburg í toppbaráttuslag. Bayern þarf sigur til að jafna Borussia Dortmund á toppi deildarinnar.

Í Frakklandi er aðeins eitt stig sem skilur sjö efstu liðin að. AS Mónakó og Lille eru þar á meðal, þau eiga 14 stig eftir 7 umferðir og deila toppsætinu með PSG og fleirum.

Hákon Arnar Haraldsson er lykilmaður í liði Lille og má búast við að hann byrji í Mónakó þrátt fyrir mikið leikjaálag í haust.

La Liga
13:00 Athletic Bilbao - Getafe
15:15 Celta Vigo - Real Betis
17:30 Real Sociedad - Levante
20:00 Barcelona - Real Madrid

Bundesliga
14:30 Hoffenheim - Bayer Leverkusen
16:30 Freiburg - Bayern

Ligue 1
14:00 Monaco - Lille
16:15 Angers - Lorient
16:15 Auxerre - Le Mans
16:15 Marseille - Le Havre
16:15 Rennes - Strasbourg
16:15 Toulouse - Troyes
Evrópa í dag - Stórstjörnur mætast í El Clásico
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Evrópa í dag - Stórstjörnur mætast í El Clásico
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Evrópa í dag - Stórstjörnur mætast í El Clásico
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Villarreal10+112
9Celta9+311
10Deportivo10011
11Osasuna9-811
12Racing Santander10-1111
13Levante9-210
14Elche10-310
15Athletic8-19
16Getafe9-69
17Vallecano9-89
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.