25.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Harpa í Fram (Staðfest) - Freyja framlengir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það voru góðar fréttir að berast úr herbúðum Fram þar sem félagið er búið að krækja í Hörpu Helgadóttur, sem reyndist mikilvægur hlekkur í sumar þegar hún lék með liðinu á láni frá FH.
Harpa er 20 ára gömul og spilaði 23 leiki með Fram í sumar. Hún er bráðefnileg og á 28 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.
„Við FRAMarar erum virkilega ánægð með að Harpa hafi ákveðið að taka slaginn með okkur á komandi tímabilum og hlökkum við mikið til þess að sjá hana áfram á vellinum í bláu," segir meðal annars í tilkynningu frá Fram, sem endaði í sjöunda sæti Bestu deildarinnar á tímabilinu.
Freyja Dís Hreinsdóttir er þá búin að framlengja sinn samning við Fram til næstu tveggja ára. Hún er 19 ára bakvörður sem hefur leikið 24 leiki í deild og bikar á tveimur árum með Fram.
„Við erum virkilega ánægð með að Freyja taki slaginn áfram með okkur og bindum við miklar vonir við hana á næstu árum."