24.10.26 - 22:24
Ívan Guðjón Baldursson
Njarðvík segir upp samningi Leandro (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leandro Fernandes mun ekki leika áfram með Njarðvík á næsta ári eftir að félagið nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við leikmanninnn.

TENGT EFNI
Fyrrum leikmaður Juventus nálgast Njarðvík
Leandro skoraði 3 mörk í 18 leikjum er Njarðvíkingar enduðu í 5. sæti Lengjudeildarinnar og töpuðu fyrir Þrótti R. í umspilinu.
Leandro, sem er fæddur 1999, þótti gífurlegt efni á sínum tíma og lék yfir 40 leiki fyrir unglingalandslið Hollands. Hann lék fyrir unglingalið PSV Eindhoven og Juventus en náði ekki að taka síðasta skrefið sem þurfti til að spila fyrir meistaraflokk.
„Knattspyrndueildin vill koma þökkum til Leo fyrir sinn tíma hjá félaginu og óska honum góðs gengis í næstu verkefnum hans," segir í tilkynningu frá Njarðvík.