24.10.26 - 20:14
Ívan Guðjón Baldursson
Vigdís skoraði og lagði upp til að halda toppsætinu

Mynd: Anderlecht

Mynd: Anderlecht

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir voru báðar í byrjunarliði Anderlecht í belgísku deildinni í dag.
Vigdís Lilja fór á kostum og kom með beinum hætti að tveimur mörkum í fjögurra marka sigri á útivelli gegn Standard Liege. Hún lagði fyrsta markið upp og skoraði svo þriðja markið, lokatölur 0-4.
Anderlecht sest aftur í sæti sitt á toppi deildarinnar með þessum sigri, þar sem liðið er komið með 18 stig eftir 7 fyrstu umferðirnar á nýju deildartímabili. Íslendingaliðið er einu stigi fyrir ofan Club Brugge sem er eina taplausa liðið í deildinni.
Fyrr í dag sat Sóley Edda Ingadóttir allan tímann á bekknum er Molde tapaði fyrir Lyn í Noregi. Liðið er einu stigi frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir.
Sandra María Jessen er þá að glíma við meðisli og var því ekki með er liðsfélagar hennar seinlágu gegn Wolfsburg í efstu deild þýska boltans.
Að lokum var Cloé Lacasse, fyrrum leikmaður ÍBV og Arsenal, í byrjunarliði Utah Royals sem gerði markalaust jafntefli í efstu deild í Bandaríkjunum.
Standard Liege 0 - 4 Anderlecht
Lyn 2 - 1 Molde
Wolfsburg 3 - 0 Köln
Utah Royals 0 - 0 Seattle Reign