25.10.26 - 00:02
Ívan Guðjón Baldursson
Rekinn eftir 14 leiki með Burnley (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nicky Hayen hefur verið rekinn úr þjálfarastarfinu hjá Burnley eftir aðeins 14 leiki við stjórnvölinn. Hann var rekinn skömmu eftir 4-1 tap gegn Lincoln City.

TENGT EFNI
Championship: Andri Lucas með tvennu og er næstmarkahæstur
Burnley er aðeins með einn sigur eftir tólf umferðir undir stjórn Hayen í Championship deildinni. Liðið er með átta stig og situr í fallsæti.
Hayen er rekinn eftir tæpa fjóra mánuði í starfi, en hann var ráðinn til félagsins í júlí. Hayen er 46 ára Belgi sem var síðast aðalþjálfari hjá Genk og Club Brugge í heimalandinu.
„Ég ætla ekki að eyða minni orku í að velta mér upp úr einhverju sem ég hef enga stjórn á," sagði Hayen þegar hann var spurður út í framtíð sína eftir tapið gegn Lincoln.
Markmið Burnley fyrir tímabilið var að fara beint aftur upp í ensku úrvalsdeildina en stjórnendur telja Hayen ekki lengur vera rétta manninn í starfið. Vincent Kompany fór með liðið upp úr Championship deildinni 2023 og Scott Parker endurtók leikinn 2025, en þeir féllu báðir beint aftur niður.
Staðan hjá Burnley er afar slæm og er liðið til að mynda ekki búið að vinna heimaleik í deildarkeppni í rúmt ár.

Burnley Football Club has dismissed Head Coach Nicky Hayen with immediate effect.
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) October 24, 2026
The Board has taken the decision following a disappointing start to the Championship season. https://t.co/rPai3oFHVU
Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Middlesbrough | 12 | +10 | 25 |
| 2 | Swansea | 12 | +3 | 23 |
| 3 | West Ham | 12 | +17 | 22 |
| 4 | Wolves | 12 | +4 | 21 |
| 5 | West Brom | 12 | +3 | 21 |
| 6 | Southampton | 12 | +12 | 20 |
| 7 | Birmingham | 12 | +8 | 20 |
| 8 | QPR | 12 | +8 | 20 |
| 9 | Stoke City | 12 | +2 | 20 |
| 10 | Blackburn | 12 | +3 | 18 |
| 11 | Portsmouth | 12 | +1 | 18 |
| 12 | Sheffield Utd | 12 | +1 | 16 |
| 13 | Millwall | 12 | -1 | 15 |
| 14 | Bristol City | 12 | -3 | 15 |
| 15 | Lincoln City | 12 | -7 | 15 |
| 16 | Cardiff City | 12 | +2 | 14 |
| 17 | Wrexham | 12 | -3 | 14 |
| 18 | Charlton Athletic | 12 | -7 | 14 |
| 19 | Bolton | 12 | -7 | 14 |
| 20 | Norwich | 12 | -2 | 12 |
| 21 | Watford | 12 | -10 | 11 |
| 22 | Burnley | 12 | -8 | 8 |
| 23 | Derby County | 12 | -11 | 7 |
| 24 | Preston NE | 12 | -15 | 5 |