Fotbolti.net
24.10.26 - 21:16
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Julián Alvarez gerði sigurmarkið - Elliott sá rautt

Spánn: Julián Alvarez gerði sigurmarkið - Elliott sá rautt
Canon

Mynd: EPA

Það fóru fjórir leikir fram í efstu deild spænska boltans í dag þar sem Julián Alvarez gerði eina mark leiksins er Atlético Madrid vann á heimavelli.
Alvarez var í byrjunarliðinu og skoraði í upphafi síðari hálfleiks til að leggja nýliða Deportivo La Coruna að velli.

Leikurinn sjálfur var opinn og fjörugur þar sem gestirnir voru óheppnir að skora ekki að minnsta kosti eitt mark er Jan Oblak átti stórleik á milli stanganna.

Fyrr í dag tapaði Valencia heimaleik gegn Villarreal eftir að hafa leitt 1-0 í leikhlé. Villarreal snéri stöðunni við með tveimur mörkum í síðari hálfleik og fékk Pape Gueye að líta beint rautt spjald fyrir olnbogaskot á 79. mínútu.

Heimamenn í Valencia lék því lokakaflann einum fleiri en tókst ekki að skora. Harvey Elliott kom inn af bekknum og fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili á 89. mínútu og tókst heimamönnunm ekki að jafna. Lokatölur 1-2.

Elliott hefur farið illa af stað hjá Valencia og er liðið aðeins með einn sigur eftir tíu umferðir. Villarreal byrjaði líka illa en hefur tekist að rétta úr kútnum á síðustu vikum og situr í efri hlutanum eftir sigurinn.

Facundo Buonanotte, sem leikur á láni hjá Elche frá Brighton, lagði þá upp í þriggja marka sigri á útivelli gegn Rayo Vallecano. Elche skoraði fyrstu tvö mörk leiksins af vítapunktinum í fjörugum fyrri hálfleik og klúðruðu heimamenn einni vítaspyrnu.

Nýliðar Racing Santander höfðu að lokum betur gegn Espanyol.

Atletico Madrid 1 - 0 Deportivo
1-0 Julian Alvarez ('48 )

Valencia 1 - 2 Villarreal
1-0 Pepelu ('38 , víti)
1-1 Alexander Freeman ('69 )
1-2 Georges Mikautadze ('90 )
Rautt spjald: Pape Gueye, Villarreal ('79)
Rautt spjald: Harvey Elliott, Valencia ('89)

Rayo Vallecano 0 - 3 Elche
0-1 Federico Redondo ('23 , víti)
0-2 Fer Nino ('36 , víti)
0-2 Pathe Ciss ('39 , Misnotað víti)
0-3 German Valera ('68 )

Racing Santander 2 - 1 Espanyol
0-1 Edu Exposito ('62 )
1-1 Jeanuel Belocian ('69 )
2-1 Yassir Zabiri ('84 )
Spánn: Julián Alvarez gerði sigurmarkið - Elliott sá rautt
Canon

Mynd: EPA

Spánn: Julián Alvarez gerði sigurmarkið - Elliott sá rautt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.