24.10.26 - 20:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Frábær byrjun Lazio heldur áfram

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lazio 2 - 1 Parma
1-0 Kenneth Taylor ('51 )
2-0 Diego Carlos ('58 , sjálfsmark)
2-1 Simone Lontani ('95)
1-0 Kenneth Taylor ('51 )
2-0 Diego Carlos ('58 , sjálfsmark)
2-1 Simone Lontani ('95)
Frábær byrjun Lazio undir stjórn Gennaro Gattuso hélt áfram þegar liðið tók á móti Parma í kvöldleik Serie A.
Staðan var markalaus eftir áhugaverðan fyrri hálfleik þar sem gestirnir frá Parma gerðu sig líklegri til að skora en Christos Mandas bjargaði heimamönnum, áður en þeir tóku völdin í síðari hálfleik.
Kenneth Taylor náði forystunni á 51. mínútu eftir vandræðagang í varnarlínu Parma. Boltinn barst til Taylor sem gerði vel að klára með að leggja boltann í hornið framhjá Edoardo Corvi.
Skömmu síðar tvöfölduðu heimamenn forystuna þegar Diego Carlos varð fyrir því óláni að stýra fyrirgjöf frá Nuno Tavares í eigið net.
Lazio komst nálægt því að setja þriðja markið en tókst ekki. Parma ógnaði lítillega og náði að minnka muninn með miklu heppnismarki í uppbótartíma, þar sem Mandas náði ekki til boltans eftir misheppnaða fyrirgjöf Simone Lontani sem fór óvart yfir Mandas, í fjarstöngina og inn.
Lazio er á toppi ítölsku deildarinnar með 22 stig eftir 8 umferðir og geta Ítalíumeistarar Inter geta jafnað lærlinga Gattuso á stigum með sigri gegn Fiorentina á morgun. Parma situr eftir í fallsæti, með 4 stig.
Albert Guðmundsson er að glíma við meiðsli og var því ekki með í hóp.