25.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lilja Björg gerir tveggja ára samning við ÍA

Mynd: ÍA

Mynd: ÍA

Lilja Björg er búin að framlengja samning sinn við ÍA um tvö ár og gildir hann núna út keppnistímabilið 2028.
Lilja er fædd 2003 og er uppalin á Skaganum. Hún er, samkvæmt vefsíðu KSÍ, með 11 mörk í 86 leikjum fyrir meistaraflokk - þrátt fyrir að vera varnarmaður.
Hún hefur verið hjá ÍA allan ferilinn og reyndist algjör lykilmaður í sumar og lék alla leiki liðsins á tímabilinu.
„Það eru frábær tíðindi að Lilja hafi ákveðið að framlengja samning sinn við uppeldisfélagið til næstu tveggja!" segir meðal annars í tilkynningu frá ÍA.
Skagakonur enduðu í sjöunda sæti Lengjudeildarinnar í sumar, með 24 stig úr 18 umferðum.