Fotbolti.net
24.10.26 - 21:39
Ívan Guðjón Baldursson

Xabi Alonso býst við meiru frá sínum mönnum

Xabi Alonso býst við meiru frá sínum mönnum
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso þjálfari Chelsea svaraði spurningum fréttamanna eftir óvænt tap á heimavelli gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Óvæntur sigur Tottenham á Brúnni
TENGT EFNI

England: Óvæntur sigur Tottenham á Brúnni

Tottenham virtist vera sterkara liðið á vellinum í tíðindalitlum leik en tókst ekki að skora fyrr en Mike Penders markvörður kýldi hornspyrnu í eigið net á lokakafla leiksins.

„Okkur vantaði ákefð í fyrri hálfleik og við vorum ekki nægilega sterkir í einvígunum. Það var lítið af færum og í hálfleik töluðum við um mikilvægi þess að skora fyrsta markið. Pedro (Neto) fékk gott færi til að skora en svo náðu þeir forystunni á tímapunkti sem kom sér mjög illa fyrir okkur," sagði Alonso.

„Strax þar á eftir fengum við rautt spjald og ég er vonsvikinn eftir þennan leik. Ég er vonsvikinn bæði með úrslitin og frammistöðuna. Á köflum vorum við ekki nógu aggressívir varnarlega og okkur vantaði meiri ró á boltanum. Við vorum að spila nágrannaslag og náðum ekki að höndla mikilvægu augnablikin á réttan hátt. Leikurinn breyttist með fyrsta markinu."

Mike Penders er 21 árs gamall og varði mark Chelsea í dag í fjarveru Emiliano Martínez sem er að glíma við meiðsli. Hann átti góðan leik þar til hann gerði slæm mistök til að gefa Tottenham fyrsta mark leiksins, með að kýla hornspyrnu í eigið net.

„Svona getur gerst í fótbolta. Þetta er erfið stund fyrir hann en við munum standa við bakið á Mike. Við munum takast á við þetta saman og hann mun koma sterkari til baka fyrir vikið."

Brasilíski framherjinn Joao Pedro var ekki í hóp Chelsea vegna meiðsla en hann er einn af nokkrum lykilmönnum sem voru fjarverandi í dag.

„Það væri svo auðvelt að tala um alla leikmennina sem okkur vantaði í dag, en það þýðir ekki neitt. Við verðum að gera betur með leikmennina sem eru til staðar. Við verðum að líta í spegil og taka ábyrgð. Við erum með mjög gott lið þrátt fyrir meiðslin og ég býst við meiru."

Alonso sagðist ekki geta tjáð sig um rauða spjaldið sem Cole Palmer fékk þar sem hann var ekki búinn að sjá atvikið. Palmer fékk réttilega seinna gula spjaldið fyrir að vera alltof seinn í boltann, sem varð til þess að hann traðkaði á leikmanni Tottenham.
Xabi Alonso býst við meiru frá sínum mönnum
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso býst við meiru frá sínum mönnum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.