24.10.26 - 23:08
Ívan Guðjón Baldursson
Emery: Eins og Jackson væri að spila rúgbí

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Unai Emery var stoltur af sínum mönnum í Aston Villa eftir sigur gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
England: Villa fyrst til að leggja Man City að velli
Man City var með fullt hús stiga en réði ekki við Nicolas Jackson og félaga á Villa Park, þar sem heimamenn fóru með 2-1 sigur af hólmi. Jackson var hetja dagsins og skoraði bæði mörk Villa gegn toppliði deildarinnar.
„Þetta var leikur í hæsta gæðaflokki og við sýndum hvað við getum. Við erum að bæta okkur með hverjum leiknum eftir slaka byrjun og þetta er nákvæmlega það sem ég vil sjá frá leikmönnum. Núna er undir okkur komið að sýna svona frammistöðu í næstu leikjum," sagði Emery.
„City er augljóslega eitt af fimm bestu liðum veraldar um þessar mundir og það gerir mig enn stoltari af þessari frammistöðu. Núna þurfum við að hvíla okkur fyrir næsta leik sem við munum mæta í fullir sjálfstrausts."
Emery hrósaði svo hetju dagsins og fékk sjálfur mikið lof bæði frá Jackson og Matty Cash.
„Ég þekki hann vel eftir að hafa þjálfað hann hjá Villarreal. Ég veit hvað í honum býr og tel mig geta náð því besta úr honum," sagði Emery um Jackson.
„Hann var stórkostlegur í þessum leik. Hann vann svo mikið fyrir liðið og kláraði færin sín fagmannlega. Hann er að taka framförum, ég man í byrjun tímabilsins þegar hann nýtti hann hvert einasta tækifæri sem bauðst til að skjóta. Hann skaut svo mikið að það var eins og hann væri að spila rúgbí, þannig að hann hefur verið að taka góðum framförum.
„Allt liðið er að taka framförum en við erum samt ekki ánægðir með stöðutöfluna. Við viljum vera talsvert ofar, markmiðið er að reyna að berjast við Arsenal og Manchester City."
Cash nýtti sitt viðtal til að hrósa Jackson og Zion Suzuki markverði áður en hann sneri sér að Emery og ræddi slæma byrjun Villa á leiktíðinni. „Það voru stórar breytingar á leikmannahópnum í sumar og það er eðlilegt að aðlögunarferli leikmanna taki tíma, sérstaklega þegar þeir eru að koma í nýja deild," sagði Cash.
„Það mikilvægasta fyrir okkur er að halda Unai Emery sem þjálfara. Hann er stórkostlegur og við viljum ekki missa hann."
Jackson rifjaði upp dvöl sína hjá Villarreal og sagði Emery hafa spilað hlutverk í ákvörðun hans um að flytja til Birmingham þar sem hann hefur farið feykilega vel af stað. „Ég er mjög ánægður hjá þessu félagi. Stjórinn er frábær og leikmennirnir líka, klefinn hérna er gjörsamlega frábær," sagði Jackson.
„Hann (Unai Emery) hefur svo mikla ástríðu og er hungraður í árangur. Ég er mjög ánægður að spila undir hans stjórn á ný."
Aston Villa, sem er með 11 stig eftir 8 umferðir í úrvalsdeildinni, heimsækir Bournemouth í deildabikarnum í miðri viku áður en Fulham kíkir í heimsókn um næstu helgi.