24.10.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Ída Marín reif stemninguna í gang

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Ída Marín Hermannsdóttir var á sínum stað í byrjunarliði Hammarby og skoraði tvennu er liðið lagði Djurgården að velli í efstu deild kvenna í sænska boltanum í dag.

TENGT EFNI
Hlín allt í öllu hjá Malmö - Ída Marín skoraði tvö
Sigurinn tryggir Hammarby 2. sæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir, en liðið á ekki raunhæfa möguleika á að ná toppliði Häcken á stigum.
Ída og stöllur voru kátar eftir sigurinn, sem og stuðningsmenn Hammarby sem stóðu á áhorfendapöllunum. Það var svo Ída Marín sjálf sem reif stemninguna í gang þegar hún fékk afhent gjallarhorn, eins og má sjá hér fyrir neðan.
Til gamans má geta að María Catharína Ólafsdóttir Grós og Freyja Stefánsdóttir komu inn af bekknum í tapliði DJurgarden, sem er fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar þrjár umferðir eru eftir.