24.10.26 - 20:58
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Eitt stig skilur sjö efstu liðin að

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lens 2 - 1 Paris FC
0-1 Luca Koleosho ('45 )
1-1 Florian Thauvin ('63 )
2-1 Thorgan Hazard ('83 )
0-1 Luca Koleosho ('45 )
1-1 Florian Thauvin ('63 )
2-1 Thorgan Hazard ('83 )
Það er aðeins eitt stig sem skilur sjö efstu lið frönsku deildarinnar að eftir að Lens lagði Paris FC að velli í eina leik dagsins.
Paris FC náði forystunni á útivelli gegn Lens þegar Luca Koleosho, fyrrum leikmaður Burnley í ensku úrvalsdeildinni, skoraði undir lok fyrri hálfleiks.
Koleosho náði forystunni fyrir gestina eftir jafnan og bragðdaufan fyrri hálfleik en heimamenn í liði Lens voru sterkari aðilinn í síðari hálfleik.
Thorgan Hazard, yngri bróðir Eden, kom inn af bekknum og lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Florian Thauvin, fyrrum leikmann Newcastle United, tveimur mínútum síðar. Thauvin endurlaunaði Hazard svo greiðann með stoðsendingu á 83. mínútu þegar Belginn gerði sigurmark leiksins. Lokatölur 2-1.
Paris FC er áfram með 14 stig eftir þetta tap. Liðið deilir toppsæti Ligue 1 með fjórum öðrum félagsliðum.
Lens og Rennes fylgja fast á eftir í 6.-7. sæti, með 13 stig.
Öll liðin í kringum Lens og Paris eiga þó leik til góða.