Fotbolti.net
25.11.21 - 18:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vandræði á Tottenham - Marki undir og manni færri

Vandræði á Tottenham - Marki undir og manni færri
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham er í erfiðri stöðu í Sambandsdeildinni en liðið er einu marki undir gegn Mura frá Slóveníu.
Mura komst yfir með glæsilegu marki eftir tíu mínútna leik.

Ryan Sessegnon fékk tækifærið í byrjunarliði Tottenham en Antonio Conte stjóri liðsins sagði í gær að hann væri mjög spenntur að sjá hann spila.

Hann hefur hinsvegar lokið leik en hann fékk sitt annað gula spjald eftir hálftíma leik. Seinna gula spjaldið má sjá með því að smella hér.

Ef Tottenham tapar í kvöld getur liðið ekki endað ofar en 2. sæti sem gefur sæti í 16 liða úrslitum í stað 8 liða úrslitum. Ef allt fer á versta veg getur liðið endað í 3. sæti og þar með úr leik.

Tottenham mætir toppliði Rennes í loka umferðinni og Vitesse fær Mura í heimsókn. Vitesse er stigi á eftir Tottenham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.