sun 26. janúar 2020 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Moyes: Varð jafnvel erfiðara þegar þeir fengu rautt
Mynd: Getty Images
„Við stilltum upp góðu liði í dag. Við vildum ná úrslitum á heimavelli en við náðum ekki að spila nægilega vel," sagði David Moyes, stjóri West Ham eftir 0-1 tap gegn West Brom í bikarnum gær.

„Við byrjuðum illa og þeir voru að fá sín færi á þeim kafla sem þeir skoruðu. Við vorum heppnir að fá ekki annað mark á okkur á þessum kafla."

„Þeir voru betri en við í dag. Jafnvel þó við stýrðum leiknum í seinni hálfleik þá náðum við ekki að brjóta þeirra vörn á bak aftur."

„Ef eitthvað er þá gerði rauða spjaldið sem þeir fengu á sig okkur erfiðara fyrir. Þeir gerðu vel varnarlega og fyrir utan gott færi Mark Noble fengum við ekki mörg færi,"
sagði Moyes að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner