Marín Rún Guðmundsdóttir hefur skrifað undir samning við Hellas Verona sem gildir út tímabilið á Ítalíu.
Marín er Keflvíkingur og hefur spilað með uppeldisfélaginu allan sinn feril. Hún er 24 ára gömul og á að baki 21 leik í efstu deild með Keflavík.
Marín er Keflvíkingur og hefur spilað með uppeldisfélaginu allan sinn feril. Hún er 24 ára gömul og á að baki 21 leik í efstu deild með Keflavík.
Hún lék þrettán leiki á liðnu tímabili og fékk eftir tímabilið félagaskipti til Slóvakíu.
Hjá Hellas verður hún númer 24 í gulu og bláu treyju Hellas.
Verona er í neðsta sæti Serie A, með eitt stig eftir þrettán leiki, hefur skorað fimm mörk og fengið 42 á sig. Næsti leikur liðsins er gegn Juventus þann 6. febrúar. Alls eru leiknar 22 umferðir í deildinni og fer sú síðasta fram 15. maí.
Athugasemdir