Fallbaráttulið Watford gekk í dag frá kaupum á nígeríska vængmanninum Samuel Kalu frá Bordeaux en hann gerir þriggja ára samning við félagið.
Kalu, sem er 24 ára gamall, hefur aðeins skorað eitt mark í tólf leikjum í öllum keppnum með Bordeaux á þessu tímabili.
Watford reynir allt til að styrkja liðið fyrir átökin seinni hluta tímabilsins því þetta er sjöundi leikmaðurinn sem félagið fær í janúarglugganum.
Kalu gerir þriggja ára samning við Watford en kaupverðið er um 4 milljónir evra.
Hann verður væntanlega klár í slaginn er liðið mætir Burnley 5. febrúar næstkomandi.
👀✍️ pic.twitter.com/z71eip30DP
— Watford Football Club (@WatfordFC) January 26, 2022
Athugasemdir