Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 26. janúar 2023 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Forseti Lyon: Gusto fer ekki í janúar
Mynd: Getty Images

Jean-Michel Aulas, forseti Lyon í Frakklandi, segir hægri bakvörðinn Malo Gusto ekki vera á förum frá félaginu í janúarglugganum.


Chelsea er að reyna að ganga frá kaupum á Gusto en Aulas vill ekki missa bakvörðinn svo seint í glugganum.

„Ég get staðfest að Malo Gusto verður hjá okkur út tímabilið hið minnsta," sagði Aulas við fjölmiðla í dag.

Hinn 19 ára gamli Gusto er búinn að komast að samkomulagi við Chelsea en hann er samningsbundinn Lyon til 2024.

Chelsea er í vandræðum með hægri bakvarðarstöðuna hjá sér eftir meiðsli Reece James. Cesar Azpilicueta hefur ekki þótt nægilega góður og spilaði Hakim Ziyech til að mynda í hægri vængbakverði í síðasta leik - markalausu jafntefli gegn Liverpool. Þá var miðvörðurinn Trevoh Chalobah prófaður í hægri bakverði í fjögurra manna varnarlínu Chelsea í 1-0 sigri gegn Crystal Palace á dögunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner