Sænski fjölmiðillinn Expressen segir frá því að Arnór Ingvi Traustason hafi ekki tekið þátt í síðustu æfingu Malmö fyrir leikinn gegn Wolfsburg í Evrópudeildinni á morgun.
Arnór fór meiddur af velli í fyrri leiknum gegn Wolfsburg í Þýskalandi. Sá leikur endaði 2-1 fyrir Wolfsburg.
Malmö er enn í möguleika fyrir heimaleikinn á morgun, en afar ólíklegt er að Arnór Ingvi verði með. Jon Dahl Tomasson, hinn íslenskættaði þjálfari Malmö, vildi þó ekki útiloka Arnór frá leiknum er hann talaði við fjölmiðla.
„Við verðum að sjá hvað kvöldið gefur okkur og ég vel hópinn á morgun," sagði Tomasson og bætti við: „Við erum enn lifandi. Við höfum skapað stórgott tækifæri og við munum elta það."
Leikur Malmö og Wolfsburg hefst 17:55 á morgun.
Athugasemdir