GG hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir keppni í 4. deildinni í sumar en Alexander Veigar Þórarinsson og Óskar Pétursson hafa gengið til liðs við félagið.
Hinn 32 ára gamli Alexander er kant og miðjumaður en hann tilkynnti á dögunum að hann ætlaði að leggja skóna á hilluna eftir að hafa leikið með uppeldisfélaginu Grindavík undanfarin ár.
Alexander hefur alls leikið 241 leik í deild og bikar á ferlinum og skorað í þeim 47 mörk en hann hefur nú skipt yfir í GG.
Óskar er 32 ára gamall markvörður en hann spilaði 154 deildar og bikarleiki með liðinu áður en hann lagði skóna hanskana á hilluna eftir tímabilið 2014.
Athugasemdir