Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 26. febrúar 2021 14:30
Magnús Már Einarsson
Kelly Lyn í markið hjá Grindavík (Staðfest)
Kelly Lyn O‘Brien
Kelly Lyn O‘Brien
Mynd: Grindavík
Markvörðurinn Kelly Lyn O‘Brien hefur skrifað undir samning við Grindavík og mun leika með félaginu í Lengjudeild kvenna í sumar.

„O‘Brien er 25 ára gömul og er ætlað stórt hlutverk í liði Grindavíkur í sumar," segir á Facebook síðu Grindavíkur.

O‘Brien lék í Meistaradeild Evrópu í haust með Vllaznia frá Albaníu en hefur einnig leikið í Ungverjalandi og í Bandaríkjunum. Hún lék með Lafayette háskólanum í Bandaríkjunum við góðan orðstír.

„Við erum mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi við Kelly O‘Brien. Hún er öflugur og hugrakkur markvörður sem mun hjálpa okkar unga liði. Hún hefur staðið sig vel þar sem hún hefur spilað og við teljum að hún muni passa vel inn í liðið hér í Grindavík,“ segir Jón Óli Daníelsson, þjálfari kvennaliðs Grindavíkur.

O‘Brien er væntanleg til Íslands í mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner