Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 26. febrúar 2021 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórey Björk frá FH til Hauka (Staðfest)
Þórey Björk í miðju margmenni í treyju Fjölnis.
Þórey Björk í miðju margmenni í treyju Fjölnis.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Haukar hafa fengið hana Þóreyju Björk Eyþórsdóttur frá nágrönnum sínum í FH.

Þórey er nítján ára snöggur kantmaður. Hún á að baki tíu leiki í efstu deild með FH og fimmtán í næstefstu deild.

Í fyrra lék hún sex leiki með Fjölni að láni.

Bæði FH og Haukar munu spila í Lengjudeildinni á komandi tímabili. Haukar enduðu í 3. sæti deildarinnar í fyrra en FH féll úr efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner