Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 26. mars 2021 22:15
Brynjar Ingi Erluson
Hildur María til FH (Staðfest)
Hildur María Jónasdóttir spilar með FH í sumar
Hildur María Jónasdóttir spilar með FH í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hildur María Jónasdóttir er gengin til liðs við FH en hún kemur til félagsins frá Augnabliki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH í kvöld.

Hildur María er fædd árið 2002 og uppalin í Breiðabliki en hún á að baki 56 leiki og 4 mörk fyrir Augnablik.

Hún hjálpaði liðinu upp í næst efstu deild árið 2018 og hefur spilað stóra rullu í liðinu síðustu tvö tímabil.

Hildur er nú mætt í Hafnarfjörðinni og mun spila með FH-ingum í Lengjudeildinni á komandi tímabili.

Hún hefur ekki langt að sækja hæfileikana en Jónas Grani Garðarsson er faðir hennar. Hann var í gullaldarliði FH-inga og er með leikjahæstu mönnum Íslandsmótsins þar sem hann lék 332 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner