Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. mars 2021 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stefán Þór í Fram (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fram
Markmaðurinn Stefán Þór Hannesson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram.

Stefán er 25 ára og kemur til liðs við Fram frá Hamri í Hveragerði þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.

Hann hefur spilað 96 leiki fyrir Hamar og verið fyrirliði liðsins.

„Framarar fagna því að fá Stefán Þór til félagsins og við hlökkum til að sjá hann með Fram merkið á brjóstinu á vellinum," segir á Facebook síðu Fram.

Framarar voru markatölu frá því að komast upp í Pepsi Max-deildina í fyrra en þeir mæta Víkingi Ólafsvík í fyrstu umferð í Lengjudeildinni þann 6. maí næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner