Tveir leikmenn hafa bæst við leikmannahóp Magna á Grenivík fyrir átökin í 2. deild karla í sumar.
Þeir voru reyndar báðir með liðinu í Lengjudeildinni síðasta sumar en þeir verða áfram á Grenivík.
Þeir voru reyndar báðir með liðinu í Lengjudeildinni síðasta sumar en þeir verða áfram á Grenivík.
Tómas Veigar Eiríksson kemur á láni frá KA. Hann spilaði 16 leiki í Lengjudeildinni í fyrra með Magna og skoraði eitt mark. Hann hefur einnig spilað með KF og Dalvík/Reyni á ferli sínum.
Tómas Örn kemur frá Þór en ekki á láni í þetta skiptið; hann kemur alfarið. Hann spilaði 19 leiki í Lengjudeildinni í fyrra er Magni féll úr deildinni með minnsta mögulega mun.
Tómas Örn er varnarmaður og nafni hans, Tómas Veigar, er miðjumaður.
Athugasemdir