Thibaut Courtois markvörður Real Madrid hefur þurft að draga sig úr belgíska hópnum vegna nárameiðsla.
Hann stóð á milli stanganna í 3-0 sigri á Svíþjóð en missir af ferð til Þýskalands en liðið leikur gegn heimamönnum á þriðjudaginn.
Courtois var stórkostlegur í síðari leik Real Madrid gegn Liverpool þar sem liðið vann 1-0 sigur og samtals 6-2 en liðið mætir Chelsea í átta liða úrslitum á Stamford Bridge eftir rúma viku.
Það er nokkuð ljóst að Courtois missir af leik Real Madrid gegn Valladolid um næstu helgi en það á eftir að koma betur í ljós hvort hann verði klár í slaginn gegn gömlu félögunum í Chelsea.
Athugasemdir