Gary Martin: Ég er kominn til að vinna titla!
Auglýsing

Gary Martin skoraði þriðja jöfnunarmark Vals í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur fengu Víkinga í heimsókn í opnunarleik Pepsí Max-deildarinnar í kvöld og gerðu 3-3 jafntefli á Origo vellinum. Gary Martin skoraði jöfnunarmarkið á 89. mínútu og sagðist Gary vera mjög ánægður með stigið úr því sem komið var.
„Ég er mjög ánægður, þetta er frábær karakter, það að koma tilbaka þrisvar sinnum eftir að lenda undir segir sitt, þess vegna eru Valur meistarar. Fullt af liðum gera jafntefli í fyrsta leik en vinna samt mótið, við verðum að vera ánægðir með stigið í kvöld."
Valsmenn spiluðu illa í fyrri hálfleik en Gary fannst þeir góðir sóknarlega í seinni hálfleik en varnarleikurinn hafi orðið þeim að falli.
„Við vorum mjög slakir í fyrri hálfleik, við vorum stressaðir og ég var slakur, í seinni hálfleik eigum við svo mun betri leik en vorum slakir varnarlega. Vinstri bakvörðurinn skorar mark ævi sinnar og svo skora þeir mark eftir hornspyrnu sem mér fannst ekki vera hornspyrna."
Gary segir að tíu mörk sé algjört lágmark frá sér í sumar en er fyrst og fremst að hugsa um að vinna titla.
„Tíu mörk er algjört lágmark, ef ég næ ekki tíu á ég hræðilega leiktíð. Aðalmarkmiðið mitt er samt að vinna deildina, ég er kominn til að vinna titla, ég hef ekki unnið deildina í sex ár og hef ekki unnið titil síðan. Nú er ég bara að hugsa um að vinna!"