Fotbolti.net
12.07.26 - 20:31
Mate Dalmay

Rúnar Kristins: Lætur okkur líta illa út að vera með svona gæja á bekknum

Auglýsing
Rúnar Kristins: Lætur okkur líta illa út að vera með svona gæja á bekknum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson var kampakátur með 6-1 sigur sinna manna í Fram gegn Þór fyrr í kvöld í Bestu deild karla.

Lestu um leikinn: Fram 6 - 1 Þór

„Gríðarlega sáttur að við héldum áfram eftir að við komumst í 3-1, kannski brotnuðu Þórsarar aðeins eftir erfitt tímabil síðustu vikur og mánuði, við náðum að fylgja því eftir og spila okkar leik.''

Fram kemst yfir eftir mistök í uppspili Þórs.

„Þórsliðið meðan staðan er 0-0 voru mjög vel skipulagðir, þeir eru að spila út frá markmanni og við höfum séð þá gera þetta áður, Freyr fer bara einn í gegn og skorar, vel lesið hjá Freysa.''

Eftir jafntefli í Keflvík gera Framarar breytingar á liðinu.

„Við vildum vera með tekníska gaura í staðinn fyrir hraðann í Róberti, við ýttum Fred hærra og komum Simon inn sem hefur verið á bekknum í síðustu fjórum leikjum. Kristófer er frábær fótboltamaður, hefur þurft að vera á bekknum en nú fékk hann sénsinn, leggur upp og skorar, frábær í dag og það er algjör synd hvað það lætur okkur líta illa út að vera með svona gæja á bekknum.''

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.