Besta deildin: KR, Fram og KA sigruðu eftir mikið markaregn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þremur leikjum var að ljúka í Bestu deild karla þar sem nítján mörk voru skoruð í þremur leikjum.
KR skoraði fimm mörk á heimavelli gegn ÍBV en staðan var 2-1 í hálfleik eftir að Omar Sowe náði forystunni fyrir Eyjamenn snemma leiks. Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason svöruðu með sitthvoru markinu.
Heimamenn gerðu út um viðureignina með þremur mörkum á tíu mínútna kafla í síðari hálfleik. Aron var aftur á ferðinni með sitt annað mark áður en Orri Hrafn Kjartansson og Eiður Gauti Sæbjörnsson komust á blað.
Vicente Valor minnkaði muninn úr vítaspyrnu og urðu lokatölur 5-2. KR er í öðru sæti með 32 stig eftir 15 umferðir, átta stigum á eftir toppliði Víkings R. sem á leik til góða. ÍBV er með 15 stig.
Fram setti þá sex mörk gegn Þór og var staðan þar einnig 2-1 í hálfleik. Haraldur Einar Ásgrímsson kláraði gestina frá Akureyri með tvennu á sex mínútna kafla og urðu lokatölur 6-1.
Freyr Sigurðsson, Ægir Jarl Jónasson, Kristófer Konráðsson og Jakob Byström komust einnig á blað í liði heimamanna en Ágúst Eðvald Hlynsson gerði eina mark Þórs.
Fram er að gera gott mót og er í þriðja sæti með 30 stig eftir 14 umferðir, tveimur stigum á eftir KR og með leik til góða. Þór er í neðsta sæti með 8 stig.
Að lokum hafði KA betur gegn ÍA eftir dramatískar lokamínútur. Skagamenn komust í tveggja marka forystu en KA vann eftir magnaða endurkomu á síðasta hálftímanum.
Gísli Eyjólfsson og Rúnar Már Sigurjónsson bjuggu til mörk fyrir hvorn annan til að ná yfirhöndinni á Akureyri en heimamenn svöruðu fyrir sig með tvennu frá Sveini Margeiri Haukssyni.
Staðan var því jöfn 2-2 á lokakaflanum og fengu Skagamenn dauðafæri sem fór forgörðum áður en vítaspyrna var dæmd seint í uppbótartímanum. Hallgrímur Mar Steingrímsson, sem lagði fyrsta mark KA upp, lét verja vítaspyrnuna frá sér en fylgdi á eftir með marki.
Þetta reyndist sigurmarkið þar sem leikurinn var flautaður af þegar gestirnir frá Akranesi tóku miðjuna. KA vann því með síðustu spyrnu leiksins.
KA er með 13 stig eftir þennan langþráða sigur og sitja Akureyringar fimm stigum frá fallsvæðinu. Þetta er fjórði tapleikurinn í röð hjá ÍA sem er með 15 stig.
KR 5 - 2 ÍBV
0-1 Omar Sowe ('4 )
1-1 Aron Sigurðarson ('24 , víti)
2-1 Arnór Ingvi Traustason ('28 )
3-1 Aron Sigurðarson ('58 )
4-1 Orri Hrafn Kjartansson ('60 )
5-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('68 )
5-2 Vicente Rafael Valor Martínez ('76 , víti)
Lestu um leikinn
Fram 6 - 1 Þór
1-0 Freyr Sigurðsson ('23 )
2-0 Ægir Jarl Jónasson ('37 )
2-1 Ágúst Eðvald Hlynsson ('45 )
3-1 Haraldur Einar Ásgrímsson ('54 )
4-1 Haraldur Einar Ásgrímsson ('60 )
5-1 Kristófer Konráðsson ('71 )
6-1 Jakob Byström ('84 )
Lestu um leikinn
KA 3 - 2 ÍA
0-1 Gísli Eyjólfsson ('38 )
0-2 Rúnar Már S Sigurjónsson ('59 , víti)
1-2 Sveinn Margeir Hauksson ('62 )
2-2 Sveinn Margeir Hauksson ('73 )
2-2 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('95 , misnotað víti)
3-2 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('95 )