Viktor Örn hefur leikið með ÍA, HK, Augnabliki og Breiðabliki á sínum ferli. Hann er uppalinn í grænu og hefur lengstum leikið í grænu.
2014 lék hann með HK og árið 2017 var hann hálfa leiktíð á láni hjá ÍA. Viktor á að baki 130 leiki alls í deild, bikar og Evrópu. Viktor er réttfættur miðvörður og segir í dag frá hinni hliðinni sinni.
2014 lék hann með HK og árið 2017 var hann hálfa leiktíð á láni hjá ÍA. Viktor á að baki 130 leiki alls í deild, bikar og Evrópu. Viktor er réttfættur miðvörður og segir í dag frá hinni hliðinni sinni.
Fullt nafn: Viktor Örn Margeirsson.
Gælunafn: VÖMarinn eða VÖM dettur stundum inn.
Aldur: 26 ára.
Hjúskaparstaða: Í sambandi.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2012 með Augnablik.
Uppáhalds drykkur: Fyrsti kaffibolli dagsins.
Uppáhalds matsölustaður: Spíran.
Hvernig bíl áttu: Á ekki bíl.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Breaking bad.
Uppáhalds tónlistarmaður: Frikki Dór og Bubbi berjast á toppnum.
Uppáhalds hlaðvarp: Missi ekki úr þætti af Steve dagskrá.
Fyndnasti Íslendingurinn: Hjörvar Hafliða.
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Er yfirleitt alveg sama og held að allir þeir sem lesa þetta gætu ekki verið meira sama hvað ég fæ mér.
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Minni á tíma í sjúkraþjálfun…
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Hef spilað með HK svo aldrei að vita.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Það var einhver gaur í Norrköping sem ég man ekki hvað heitir.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Þeir eru nokkrir ólíkir en helvíti góðir.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Davíð Atlason var alltaf full reiður miðað við gæði.
Sætasti sigurinn: Að vinna Essómótið 2005.
Mestu vonbrigðin: Tapa bikarúrslitum 2018.
Uppáhalds lið í enska: Manchester United.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Arnþór Ari Atlason er flottari í grænu.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Kristian Nökkvi Hlynson var farinn að snú manni í hringi 12 ára.
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Finnur Orri Margeirsson en lifandi kyntákn.
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Dagmar Diljá Margeirsdóttir leikmaður Hamars.
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi.
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Damir en það virðist víst vera viðkvæmt eins og er.
Uppáhalds staður á Íslandi: Heima í kaffi.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Við vorum að keppa á móti liði á Danacup þar sem mótherjarnir voru slakir í sígó korter í leik, á meðan hituðum við upp af krafti. Þegar mönnum var skipt útaf settust þeir á bekkinn og aftur kveiktu þeir sér í einni. Galnasta við þetta allt að við vorum 14 ára gamlir.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Ekkert markvisst en eitthvað.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Tiempo.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Tungumálin voru oft bras.
Vandræðalegasta augnablik:
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Höskuld, Gísla og Arnþór Ara við myndum halda uppi alvöru stemningu í anda Hollandsferðar sem farið var í á miðju tímabili 2017.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Hata blöðrur, nánast hræddur við þær.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Verð eiginlega að segja Árni Vill eftir að hann kom aftur. Minnti að hann væri skemmtilegri.
Hverju laugstu síðast:
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Boltalaus hlaup.
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Florentino Pérez hvort honum vanti pening.
Athugasemdir