Oliver Helgi Gíslason er genginn til liðs við Selfoss. Oliver sem er 21 árs kemur til liðsins frá Haukum.
Oliver er kantmaður en getur einnig leyst stöðu framherja. Hann gerir tveggja ára samning við Selfoss en liðið er nýliði í Lengjudeildinni.
Oliver er kantmaður en getur einnig leyst stöðu framherja. Hann gerir tveggja ára samning við Selfoss en liðið er nýliði í Lengjudeildinni.
„Ég er mjög ánægður með það að vera kominn í Selfoss. Liðið er gott og það sama má segja um þjálfarann. Þá virðist stemningin í hópnum vera góð þannig mér líst mjög vel á þetta," segir Oliver.
Á fyrstu æfingunni eftir að hafa skrifað undir samning við Selfoss varð Oliver fyrir því ævintýralega óhappi að ökklabrotna. Hann gekkst undir aðgerð nokkrum dögum síðar og er nú í endurhæfingu vegna þess.
„Læknarnir tala um sirka tíu vikur í það að ég geti farið að spila fótbolta aftur. Aðgerðin gekk vel og ég losna úr gifsinu í byrjun maí, en þá fer ég í svokallað göngugifs sem ég verð með í fjórar vikur," segir Oliver.
Selfoss leikur sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni þetta tímabilið þann 8. maí, gegn Vestra á heimavelli.
Athugasemdir