Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 26. apríl 2022 18:27
Brynjar Ingi Erluson
Capoue segir það helvíti að spila á Anfield - „Þeir vilja bara drepa alla"
Etienne Capoue
Etienne Capoue
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Franski miðjumaðurinn Etienne Capoue er ekkert sérstaklega spenntur fyrir leik liðsins gegn Villarreal á Anfield á morgun ef marka má viðtal hans við Yahoo Sports.

Fyrri leikur liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu er spilaður á Anfield á morgun.

Villarreal hefur farið erfiða leið inn í undanúrslitin. Liðið kastaði bæði Juventus og Bayern München úr keppninni og nú er komið að Liverpool.

Capoue segir það algert helvíti að þurfa að fara á Anfield og spila þar.

„Anfield er helvíti, maður verður að segja hlutina eins og þeir eru. Þetta er helvíti," sagði Capoue.

„Af öllum þeim leikvöngum sem ég hef spilað á þarna á Englandi, þá er Anfield verstur. Ég veit ekki hvort það er andrúmsloftið eða hvernig þeir spila, en eina sem er víst er að maður er í helvíti í 90 mínútur."

„Þeir hafa þennan eiginleika að yfirstíga öll mörk og skapa ekkert nema vandræði fyrir liðin allan leikinn og hvar sem er á vellinum. Þeir hætta aldrei og keyra á þig allan leikinn. Þeir vilja bara skora mörk og þegar þeir eru búnir að skora þá halda þeir áfram. Þeir vilja bara rota þig."

„Þeim er drullusama hvað eða hver er fyrir framan þá. Þeir vilja bara drepa alla og þannig er það,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner