Fotbolti.net
26.04.23 - 21:02
Stefán Marteinn Ólafsson

Kristján Guðmunds: Það vantaði svolítið að brjóta þetta aðeins upp

Auglýsing
Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar

Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Stjarnan tóku á móti norðan konum í kvöld þar sem Þór/KA mættu í heimsókn á Samsungvöllinn í Garðabæ þegar 1.umferð Bestu deildar kvenna hélt áfram göngu sinni.

Stjörnukonum hefur verið spáð gríðarlega góðu gengi í sumar en urðu að játa sig sigraða í fyrstu umferð gegn Þór/KA.

„Við bara byrjuðum leikinn illa. Heilt yfir spiluðum við bara ekki góðan leik og vorum langt frá þeim í byrjun og hikandi og vorum greinilega að hugsa um eitthvað allt annað." Sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn í kvöld.

„Þetta eru litlir hlutir og fá færi og þetta er bara spurning hvort að boltinn fari stöngin út eða stöngin inn og það gerðist þannig hjá okkur að boltinn fór stöngin út og við fengum á okkur mark og eftir það var erfitt að fara í gegnum varnarmúrinn en við eigum að eiga leiðir til þess að gera það en tókst ekki nógu vel. Að halda áfram var kannski allt í lagi en mér fannst frammistaðan bara ekki nógu góð." 

Stjarnan var að komast í fínar stöður en virkuðu heldur ragar við að skjóta eða láta vaða þegar færi gáfust.

„Það var áberandi í fyrri hálfleik að við vorum að komast í færi inni í teig og ákváðum að gefa hann í staðin fyrir að skjóta. Það gerist í einhverjum tilfellum í fyrri hálfleiknum en mér finnst við ekki ná nógu mörgum færum í seinni en maður gleymir þessu alltaf þegar maður er á þessum leikjum og svo sér maður þetta eftirá en já það vantaði svolítið að brjóta þetta aðeins upp, að einhver leikmaður tæki af stkarið og myndi brjóta þetta aðeins upp."

Nánar er rætt við Kristján Guðmundsson í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.