Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
   fim 26. maí 2022 19:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Luka eftir tap gegn KA: Gott fyrir strákana að sjá að þeir geti þetta
Mynd: Heimasíða Reynis Sandgerði

Reynir Sandgerði tapaði í 32 liða úrslitum gegn KA í kvöld 4-1 á Akureyri og er því fallið úr leik.


Lestu um leikinn: KA 4 -  1 Reynir S.

Reynir leikur í 2. deild en Luka Jagacic þjálfari liðsins var stoltur af liðinu í leikslok.

„Það er leiðinlegt að tapa en við getum tekið mikið út úr þessum leik. Við vorum í leiknum í sextíu mínútur, við vorum ákveðnir og spiluðum sem lið, það var margt jákvætt í leiknum," sagði Luka.

 „Við þurfum að byggja ofan á þetta en auðvitað gátum við ekki haldið í við þá síðasta hálftímann, KA er með miklu meiri gæði og þeir áttu skilið að vinna, ekki spurning."

Reynir S. hefur ekki byrjað tímabilið vel en liðið er án stiga eftir fyrstu þrjá leikina í deildinni. Luka er sannfærður um að frammistaðan í dag gefi þeim kraft fyrir framhaldið.

„Maður er miklu bartsýnni, það var gott fyrir strákana að sjá að þeir geti þetta þrátt fyrir að við höfum misst alla þessa leikmenn getum við enn verið samkeppnishæfir í deildinni."


Slapp
banner
banner